Vöruskil

Vöruskil
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Ef skila á vöru með skiptimiða þá er hægt að skipta vörunni fyrir aðra vöru. Ef viðskiptavinur vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út rafræn inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem hægt er að nota í vefverslun. Vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið snud(at)snud.is áður en vöru er skilað.

Athugið! Enginn skilaréttur er á vörum sem framleiddar eru eða sérmerktar fyrir viðskiptavini. Þetta tekur gildi þegar pöntun er staðfest.

Sé gallaðri vöru skilað er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup. Snuð.is ber ekki ábyrgð á skemmdum sem stafa af rangri notkun, umhirðu, og meðferð.

 

Útsölur og vöruskil:

Skila-/skiptiréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

 

×
×

Skoða allar upplýsingar